16.10.2022
Piff, The Pigeon International Film Festival var haldin á Ísafirði dagana 13. - 16. október. Mikið af frábærum myndum voru sýndar og annað árið í röð voru sýningar í bókasafninu í Kaugfélagi Súðavíkur.
Á föstudagskvöldinu þ. 14. okt.voru fjórar stuttmyndir sýndar.
Á laugardagskvöldinu þ. 15. voru sex stuttmyndir í boði, allar leikstýrðar af konum.
Leikstjóri, Doll story, Shakila Samavati heimsótti okkur og sagði okkur frá mynd sinni og svaraði spurningum áhorfenda.
Þá kom aðalleikona myndarinnar The Untouchable, Nika Shahbazzadeh og sagði okkur frá myndinni, sinni upplifun og svaraði svo spurningum.
Leikstjóri The Untouchable er Avazeh Shahnavaz.
Það var okkur mikill heiður að frá þessar frábæru konur í heimsókn til okkar, vera þátttakendur í PIFF og geta boðið upp á metnaðarfullar og vel gerðar
kvikmyndir og stuttmyndir.
Þess má síðan má geta að á laugardeginum var barna og unglingabíó og kvikmyndin “Jim Button og hinir brjáluðu 13” sýnd. Boðið var upp á popp, snakk og gos á sýningunni og var þetta hin besta skemmtun.
12.10.2022
Piff er alþjóðleg kvikmyndahátíð á Vestfjörðum. Sýningar verða í Súðavík annað árið í röð og fáum við úrval stuttmynda auk ævintýramyndar sem sýnd verður á sunnudag fyrir yngri kynslóðina. Á þeirri sýningu verður boðið upp á popp og kók og eitthvað nammi í bland. Á laugardagskvöldinu verða kvenleikstjórar í forgrunni og sýndar verða nokkrar stuttmyndir eftir þær. Þetta eru metnaðarfullar stuttmyndir sem sýndar verða og því eftir miklu að slægjast fyrir kvikmyndaáhugafólk. Verið hjartanlega velkomin.
09.09.2022
Nú fer að styttast í veturinn og breyting verður á opnunartíma Kaupfélagsins í Súðavík. Í í haust og vetur verður opið á mánudögum til föstudags frá 10:00-17:00. Á laugardögum frá 15:00 - 17:00 og lokað verður á sunnudögum. Því ber að fagna að lengri opnunartími verður á virkum dögum og kemur það til með að koma sér vel fyrir marga.