Opnunartími:
Þriðjudaga og fimmtudaga frá 13:00 til 17:00 eða eftir nánari samkomulagi við starfsmann áhaldahúss í síma 863-1019.
Viðvera er eftir atvikum en svæðið er vaktað með öryggismyndavél. Bent er á að hafa samband vegna gjaldskylds úrgangs ef vakt er ekki á svæðinu.
Vegna myndavélarvöktunar er bent á heimasíðu Súðavíkurhrepps varðandi persónuverndarstefnu.
Hvað ber að greiða fyrir:
Atvinnurekstur greiðir fyrir úrgang að undanskildum málmum/járni og úrgangsflokkum sem bera úrvinnslugjald, s.s. hjólbarða, bylgjupappa og plastumbúðir.
Almenningur greiðir ekki fyrir málma/járn eða úrgang sem getur talist falla til við daglegan heimilisrekstur en greiðir gjald vegna
- úrgangs frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis og lóða.
- úrgangs frá bifreiðaviðgerðum.
- úrgangs vegna húsdýrahalds.
- spilliefni eftir eðli og umfangi.
Móttökugjöld fyrir einstaka farma:
Móttökugjöld verða að lágmarki kr. 500 fyrir allt að 0,25 m3 og kr. 500 fyrir hvern 0,25 m3 umfram það. Miðað er við móttöku sorps allt að 2 m3 í hvert skipti.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.