Undirritun samnings um raforkustreng fyrir Kalkþörungaverksmiðjuna

Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða og Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins undirrituðu þann 18. desember kl. 15:00 samning um tengingu nýrrar kalkþörungaverksmiðju við Langeyri í Súðavík. Um er að ræða 20 km langan jarðstreng á 33 kV spennustigi, sem liggja mun frá aðveitustöð OV á Ísafirði í nýja aðveitustöð OV sem áformað er að byggja í Súðavík.  Undirritunin fór fram í Grunnskólanum í Súðavík. Þessi samningur tryggir að hægt sé að flytja raforku til Súðavíkur til að þurrka kalkþörunga í nýrri verksmiðju Ískalk sem hefja á starfsemi sumarið 2027. Viðræður um þetta hafa staðið í nokkur ár og nú var komið að þessari stóru stund.  Við þetta tækifæri veittu Orkubúið og Kalkþörungaverskmiðjan Ískalk 250.000 króna styrk hvor til Björgunarsveitarinnar Kofra í tilefni af kaupum á björgunarskipinu Þór sem kom síðustu helgi til heimahafnar í Súðavík.

ljósmyndir og frétt Th. Haukur