Umhverfisstofnun hefur auglýst tillögu að starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi Háafells ehf. í Ísafjarðardjúpi.

Umhverfisstofnun er með til auglýsingar tillögu að starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi Háafells ehf. í Ísafjarðardjúpi.

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Háafell ehf. vegna sjókvíaeldis laxfiska í Ísafjarðardjúpi. Um er að ræða eldi með allt að 6.800 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma. Háafell ehf. hefur verið með starsleyfi fyrir 7.000 tonn af regnboga og þorski í Ísafjarðardjúpi.

Umhverfisstofnun metur það svo að mengun verði aðallega í formi lífræns úrgangs (bæði í föstu og uppleystu formi) sem frá eldinu muni berast í viðtakann. Að mati stofnunarinnar geta áhrif mengunarinnar verið talsvert neikvæð á eldissvæðum en afturkræf og munu því ekki hafa varanlega áhrif á ástand sjávar og botndýralíf. Eldið er kynslóðaskipt og svæði hvíld á milli kynslóða þannig að botninn jafni sig á milli. Umhverfisstofnun bendir á að í starfsleyfi stofnunarinnar fyrir starfseminni mun vera ákvæði þess efnis að stofnunin geti einhliða frestað útsetningu seiða, bendi niðurstöður vöktunar til þess að umhverfisaðstæður séu óhagstæðar á eldissvæði og þarfnist frekari hvíldar.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202003-441. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 7. apríl 2021. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tillöguna ásamt fylgigögnum má nálgast á vef Umhverfisstofnunar, https://ust.is