Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi vegna bleikjueldis Ævintýradalsins ehf. að Heydal í Súðavíkurhreppi. Um er að ræða eldi með allt að 20 tonna lífmassa á hverjum tíma.
Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn með þeirri hreinsun sem rekstaraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202111-192, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 12. desember 2022.
Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.