Er ekki tími til kominn að tengja var sungið hér um árið. Og núna er verið að tengja, verið að ljósleiðaravæða Súðavík. Míla og Snerpa eru að leggja ljósleiðarann í þorpinu. Framkvæmdum hefur fylgt nokkurt rask en allur frágangur er til fyrirmyndar. Íbúum verður í framhaldi boðið næstu dagana, að taka ljósleiðarann inn og hafa þá val um að kaupa þjónustu af þessum tveimur aðilum þ.e. Mílu og Snerpu.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.