Gönguhátíð í Súðavík 10 ára um verslunarmannahelgina 2024
Gönguhátíðin í Súðavík verður haldin í tíunda skiptið um verslunarmannahelgina í sumar. Endilega takið frá helgina 2.-5.ágúst 2024.
Fimmtudagur 1.ágúst – hittingur á Melrakkasetrinu hefst kl.20:00, hægt er að panta mat á setrinu í síma 456-4922
Föstudagur 2. ágúst
Skötufjarðarheiði
Gengið er upp úr Skötufirði upp Grafargilið og yfir Skötufjarðarheiði og niður í Heydal í Mjóafirði. Þar er hægt að kaupa kaffi og meðlæti, fara í sund eða pott og njóta lífsins.
Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson
Brottför: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík.
Vegalengd er um 14 km, áætlaður göngutími 6 tímar, hækkun um 550m, 2 skór
Brenna fyrir neðan Súðavíkurskóla kl. 20:30
Laugardagur 3.ágúst
Fjallið Bessi í Álftafirði – fyrir ofan Meiri Hattadal
Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson
Brottför: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík
Vegalengd 12,5 km, 640 m hækkun, áætlaður göngutími 5 -6 klukkustundir, 2 skór.
Opið grill í Raggagarði – allir mæta með grillkjöt og meðlæti og eigin drykki frá kl 18:00 – 20:00
Sveitarball/diskó í Samkomuhúsinu í Súðavík 20:30 – 24:00 ? Allir mæta með eigin drykki
Sunnudagur 4.ágúst
Kofri
Hið fallega fjall Kofri fyrir ofan Súðavíkcity
Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson
Brottför: vegna Kofra: kl 11:00 frá búðinni í Súðavík.
Áætlaður göngutími 3 -5 klukkustundir, 2 -3 skór.
Mánudagur 5.ágúst
Æðey
Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson
Brottför: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík, sameinast í bíla og þaðan farið niður á bryggju og siglt út í Æðey, gengið um eyjuna með Jónasi Kristjáni sem þekkir eyjuna mjög vel. Endilega að taka með sér nesti út í eyjuna.
Áætlaður göngutími 1 – 2 klukkutímar, 1 skór
Vakin er athygli á því að skráning í göngurnar þarf að liggja fyrir í síðasta lagi miðvikudaginn 31.júlí. Morgunmatur verður alla daga í Kaupfélaginu (verslun) – er innifalinn ef keyptur er pakki með öllum ferðunum. Upplýsingar um göngurnar og farastj
órn er á Facebook síðu gönguhátíðar.
Verð í göngur á Gönguhátíðinni eru eftirfarandi:
Ef keyptur er aðgangur í allar göngurnar er verðið kr. 20.000.- og er þá innifalið morgunmatur í búðinni alla göngudagana, brenna og ball í Samkomuhúsinu Súðavík.
Hægt er að kaupa stakar göngur á 5000.-kr hverja ferð.
Þátttakendur mæta í göngur á eigin ábyrgð og er bent á að hafa ferða- og slysatryggingar í lagi. Almennir fyrirvarar gilda um göngur út frá veðri og aðstæðum.
Ef fella þarf niður göngur vegna veðurs eða aðstæðna verður stefnt á að hafa aðrar göngur í staðinn ef hægt er.
Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir s.893-4985, Ólafur Elíasson s.821-1152 og Sigurður Kjartansson s.897-4542.
Einnig veita upplýsingar: Bragi Þór Thoroddsen s. 868-9272
Hægt er að greiða fyrir göngurnar inn á reikning Göngufélags Súðavíkur. Senda kvittun á: annalind@sudavikurskoli.is
Reiknisnúmer: 0154-05-420900, kt:440304-4190
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.