„Það er mjög margt sem mælir með því að fiskeldi og kræklingarækt fari vel saman, meðal annars vegna þess að umhverfisáhrif sjókvíaeldis geta hugsanlega minnkað ef kræklingarækt er byggð upp samhliða uppbyggingu á sjókvíaeldi,“ segir Shiran Þórisson hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Verkefni á vegum félagsins, sem miðar að því fá fjárfesta í skeldýrarækt á Vestfjörðum, er nú í fullum gangi og aðilar hafa leitað til félagsins til að vinna að viðskiptaáætlunum. Í kjölfar mikillar um
Meira