Jafnréttisáætlun Súðavíkurhrepps
Samþykkt 7. nóvember 2006
1.gr.
Jafnréttisáætlun Súðavíkurhrepps byggir á lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla í samfélaginu, svo nýta megi til fulls þann mannauð sem í sveitarfélaginu býr.
2.gr.
Markmið jafnréttisáætlunarinnar er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Súðavíkurhreppi. Jafnframt er það markmið að bæði konur og karlar njóti sömu réttinda og kjara, óháð kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, uppruna, litarhætti, efnahag, ætterni, fötlun eða sjúkdómum og nýti sér það lagalega jafnrétti sem er til staðar í atvinnulífinu, innan fjölskyldunnar, í félagslífi og til menntunar. Leitast skal við að flétta jafnréttismálin inn í starfsemi og líf íbúanna, þannig að þau verði eðlilegur þáttur í allri starfsemi.
3.gr.
Með jafnréttisáætlun Súðavíkurhrepps er kveðið á um það hvernig sveitarfélagið, stofnanir og fyrirtæki í Súðavíkurhreppi geta unnið að jafnrétti, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla og þar með að bættum samskiptum og líðan allra íbúa sveitarfélagsins.
4.gr.
Með samþykki jafnréttisáætlunar fyrir sveitarfélagið er lögð áhersla á frumkvæði yfirstjórn sveitarfélagsins til aðgerða sem jafna rétt kynjanna.
5.gr. Framkvæmd og umfang
Jafnréttisáætlun Súðavíkurhrepps tekur til stjórnkerfis sveitarfélagsins og starfsmanna þess annars vegar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem veitt er hjá stofnunum sveitarfélagsins.
Jafnréttisnefnd Súðavíkurhrepps fer með jafnréttismál sveitarfélagsins og skal leitast við að jafna stöðu kynjanna í fyrirtækjum og stofnunum sveitarfélagsins ásamt því að vera ráðgefandi í stefnumótun í málaflokknum.
Við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á vegum Súðavíkurhrepps skal leitast við að hlutföll kynja séu sem jöfnust.
6.gr. Stjórnsýsla og starfsmannastefna
Lausar stöður hjá sveitarfélaginu skulu að öllu jöfnu auglýstar til umsóknar. Við nýráðningar skal vera hvatning til þess kyns sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein og skal það koma fram í auglýsingu um starf eða sem hvatning þess efnis að konur jafnt sem karlar sæki um starfið.
Við úthlutun verkefna, ráðninga, tilfærslna í starfi og við uppsagnir skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Þess skal gætt að konur og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna og er vísað til laga nr. 96/2000, 14. gr. Í því sambandi skal leitast sérstaklega við að gæta jafnræðis við mat mismunandi reynslu, starfssviðs og menntunar kvenna og karla. Þannig skal til dæmis leitast við að meta heimilisstörf til starfsaldurs.
Það telst þó ekki til mismununar að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar, barnsburðar og umönnunar ungbarna.
Starfsfólk sveitarfélagsins skal gefinn kostur á að samþætta fjölskyldulíf og atvinnulíf. Einnig skal það eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri hagræðingu vinnutíma, þar sem því verður við komið. Konum og körlum skal einnig gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið til að sinna fjölskylduábyrgð, eins og umönnun veikra barna eða annarra nákominna.
7.gr. Fræðsla og ráðgjöf
Fræðsla og aðstoð í jafnréttismálum skal standa starfsmönnum Súðavíkurhrepps og öðrum bæjarbúum til boða. Þetta á við um störf og starfsaðstæður, s.s. kjör og samskipti á vinnustað, kynferðislega áreitni, valdbeitingu og önnur þau mál sem snúa að jafnrétti og samskiptum kynjanna. Þar á meðal leiðbeiningar við kærur til kærunefndar jafnréttismála.
Allt æskulýðsstarf á vegum sveitarfélagsins skal vera skipulagt þannig að stúlkur og drengir hafi sömu tækifæri til íþróttaiðkana og íþrótta- og félagasamtök hvött til að gera hið sama. Kynin sitji jöfn að fjárveitingum á vegum sveitarfélagsins til íþróttaiðkunar. Þess skal gætt að stúlkur og drengir hafi sömu möguleika til sumarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Tryggja skal starfsmönnum þessara stofnana nauðsynlega fræðslu til að gera þá meðvitaðri og hæfari til að vinna að jafnrétti kynjanna.
Beina skal því til skólayfirvalda og forstöðumanna uppeldisstofnana að vinna að jafnri stöðu kynjanna og veita börnum og unglingum hvatningu til að rækta sérkenni sín og jákvæð samskipti kynjanna.
Áherslu skal leggja á að kennarar fái þjálfun í að undirbúa nemendur af báðum kynjum fyrir einkalíf, atvinnulíf, félags- og fjölskyldulíf.
Jafnréttisnefnd skal veita íbúum sveitarfélagsins liðveislu í jafnréttismálum sé eftir því leitað og hjálpa einstaklingum til að leita réttar síns s.s. sem með kærur til Kærunefndar jafnréttismála.
Leikskóli og grunnskóli Súðavíkurhrepps skulu kappkosta að:
- að námsefni mismuni ekki kynjunum,
- að sjálfstyrking sé sjálfsagður hluti námsins á öllum skólastigum,
- að skólinn leggi áherslu á að búa bæði kynin undir ábyrgð og skyldur fjölskyldu- og atvinnulífs á grunni jafnréttis,
- að skólinn geri átak í því að kynna nám í hefðbundnum karlagreinum fyrir stúlkum og hefðbundnum kvennagreinum fyrir drengjum.
8.gr. kynning
Jafnréttisáætlun þessa skal kynna fyrir stjórnendum sveitarfélagsins, starfsmönnum og kjörnum fulltrúum. Eftir samþykki jafnréttisáætlunar Súðavíkurhrepps skal hún einnig kynnt, íbúum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu.
Stöðu kvenna og karla í Súðavíkurhreppi skal kanna á hverju kjörtímabili. Nauðsyn-legar eru fræðslu- og kynningaraðgerðir að frumkvæði sveitarfélagsins sem hafa það að markmiði að efla jafnrétti kynjanna.
9.gr. Endurskoðun
Áætlun þessi skal yfirfarin af sveitarstjórn annað hvert ár en heildarendurskoðun skal fara fram á fjögurra ára fresti, strax eftir kosningar.
Samþykkt á 7. fundi sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps sem haldin var 15. nóvember 2006



