Ávarp sveitarstjóra
Ég býð þig velkomin á heimasíðu Súðavíkurhrepps sem var tekin í notkun í lok október 2006.
Mikið er lagt upp úr, að á vefnum verði að finna góðar og gagnlegar upplýsingar um sveitarfélagið og að vefurinn stuðli að auknu upplýsingastreymi til íbúanna og geri þjónustu þess eins aðgengilega og kostur er.
Þann 1. júní árið 2005 samþykkti sveitarstjórn Súðavíkurhrepps metnaðarfulla stefnumörkun fyrir Súðavíkurhrepp sem stendur til ársins 2010. Í stefnumörkuninni var sérstaklega horft til atvinnu- og byggðamála. Niðurstöður stefnumörkunarinnar eru verkfæri sveitarstjórnar til ná þeim markmiðum sem þar eru jafnframt sett fram, en tilgangurinn er að gera Súðavíkurhrepp að enn fjölskylduvænna samfélagi ásamt því að hlúa sérstaklega vel að umhverfi, bæði starfandi og nýrra fyrirtækja.
Í dag er leikskólinn í Súðavík gjaldfrjáls í allt að 8 klst í dag, en Súðavíkurhreppur var fyrst sveitarfélaga til að ganga það skref til fulls. Byggt hafa verið tvö iðnaðarhúsnæði, um 1.100 fermetra að stærð á Langeyri, veittir eru atvinnumálastyrkir til fyrirtækja sem sýnt geta fram á ný störf í sveitarfélaginu og jafnframt er stutt við þá sem ráðast í byggingu íbúðarhúsnæðis en mikill skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði í Súðavík bæði til leigu og til sölu. Hvað dreifbýlið varðar, þá er bændum mjólkurbúa m.a. gefin kostur á að auka við mjólkurkvóta sinn með aðstoð sveitarfélagsins og ferðaþjónustuaðilum í dreifbýli Súðavíkurhrepps eru veittir sérstakir umhverfisstyrkir.
Þessar framsýnu aðgerðir til að efla sveitarfélagið má rekja til þeirrar stefnumörkunar sem farið var í og hrundið af stað í júní 2005.
Horft er til þess að þeim fjármunum sem er ráðstafað í ofangreindar aðgerðir og fjárfestingar séu fórnarkostnaður og sá fórnarkostnaður muni skila sér margfalt til baka þegar fram í sækir.
Til að hægt sé að fara í fyrrnefndar skuldbindingar þarf sveitarfélagið að hafa fjárhagslega burði til að geta staðið undir þeim.
Svo hefur verið með rekstur Súðavíkurhrepps sem hefur t.d. undanfarin fjögur ár náð að skila rekstrarafgangi sem hefur numið kr. 1,2 millj. til kr. 8.9 millj. á ári eftir fjármagnsgjöld og skatta.
Jafnframt er ánægjulegt að geta sagt frá því að fjölgun hefur átt sér stað í sveitarfélaginu undanfarin ár.
Ef skoðuð er þróunin síðastliðinn fimm ár, þ.e. frá 1. desember 2001 til 1. desember 2005 hefur fjölgað í Súðavíkurhreppi um 17 íbúa og verður það að teljast góður árangur miðað við þróun víða á landsbyggðinni.
Það er skemmtilegt viðfangsefni að eiga þátt í að móta framtíð okkar sveitarfélags. Það er jafnframt skoðun mín að við erum að ná góðum árangri og erum stöðugt að efla sveitarfélagið sem við getum verið stolt af og er eftirsóknarvert að starfa og búa í.
Lifið heil,
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri.