Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae

Fyrirtæki

Murr ehf

Murr ehf. var stofnað 2008 og framleiðir gæludýrafóður fyrir hunda og ketti.

Auk þess framleiðir Murr sælgæti fyrir hunda.

 

Framkvæmdastjóri Murr ehf. er Einar Páll Tamimi

Verksmiðju- og framleiðslustjóri er Þorleifur Ágústsson

Fóðurfræðingur er Bragi Líndal Ólafsson

 

Verkstjóri er Sigurdís Samúelsdóttir

Netfang murr@murr.is

Sími 456 1414

GSM 8939444




Vefsíða: www.murr.is                                Netfang: murr@murr.is                

Bifreiðaverkstæði H. Bjarnasonar

Staðsett við Njarðarbraut 20 Súðavík.
Boðið er upp á allar almennar bifreiðaviðgerðir, ásamt smur- og dekkjaþjónustu.
Helgi Bjarnason, bifvélavirkji


Opið allt árið - Sími: 456 - 4977 eða gsm: 893 - 8857


Dekurhúsið, hárgreiðslustofa

Staðsett við Holtagötu 4 Súðavík.
 
Opnunartími:
Þriðjudaga og miðvikudaga: frá kl. 13:00 til 17:00.

Fimmtudaga og föstudaga: frá kl. 10:00 til 18:00

Laugardaga - eftir samkomulagi


Pöntunarsími: 456 - 5070

Félagar ehf

Félagið býður upp á þjónustu við garðslátt fyrir einstaklinga og fyrirtæki og hefur á að skipa góðum vélum og tækjum til verksins.
Jafnframt býður félagið upp á ýmiskonar þjónustu fyrir bændur, s.s. slátt og fl.


Nánari upplýsingar veitir Yordan í síma 861 -4658


Frosti hf, Súðavík

Frosti hf, Súðavík er staðsett að Njarðarbraut 14 Súðavík.

Þar fer nú fram niðursuða á þorsklifur, undir merkjum HG, rekstur og harðfiskvinnsla á vegum Vestfiskur ehf.



Sími 450 4600 - www.frosti.is

Heilsugæslusel Súðavíkur

Heilsugæsluselið er í þjónustuhúsinu Álftaveri við Grundarstræti 3 Súðavík.
Læknamóttaka er á mánudögum frá kl. 10:00 til kl. 12:00.

Sé þörf að læknisaðstöð utan þess tíma sem heilsugæsluselið er opið er hægt að hafa samband við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði í síma 450 4500.
Um 22 km. er frá Súðavík á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.



Þjónusta allt árið - Pantanir í síma: 456 4966 / 450 4500 - heimasíða: www.fsi.is

Iceland Sea Angling / Sumarbyggð hf

« 1 af 3 »

Iceland Sea Angling ehf er ferðaþjónustufyrirtæki staðsett í Súðavík og sérhæfir sig í sjóstangveiðiferðum fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn.

 

Iceland Sea Angling ehf leigir út:

 

  • - 14 sumarhús í Súðavík.
  • - 5 sumarhús á Tálknafirði.
  • - 21 sjóstangveiðibát
    Framkvæmdastjóri félagasins er Finnur Jónsson


Sími 844 0145 - heimasíða: - www.icelandseaangling.is

Jónbjörn Björnsson sf

Verkstæði Jónbjörns Björnssonar sf er staðsett við Njarðarbraut 18.
Einnig er boðið upp á þjónustu með vinnuvélum s.s. gröfu, hjólaskóflu, vörubíl, o.fl. tækjum.


Þjónustan er í boði allt árið. - Frekari upplýsingar í síma: 456-4951 eða gsm: 895 7118

Melrakkasetur Íslands ehf

Melrakkasetur Íslands ehf Er fræðasetur sem helgað er íslenska melrakkanum sem er af tegundinni Vulpes lagopex og er eina upprunalega landspendýrið á Íslandi.

Melrakkasetur Íslands ehf. var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og meðal stofnfélaga eru einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög. þessir aðilar eiga það sameigilegt að hafa áhuga á íslensku tófunni og öllu sem henni viðkemur, svo og náttúrulífs- og sögutengdri ferðaþjónustu.

Langtímamarkmið með stofnun setursins eru þau að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum í fortíð og nútíð. Að setja upp sýningu fyrir ferðamenn þar sem mun verða á boðstólnum fræðandi efni í máli og myndum um refi í náttúrunni, hérlendis sem erlendis, refarækt og refaveiðar. Ennfremur að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar og þróun sjálfbærrar náttúrulífs-ferðamennsku.

Hvar erum við?

« 1 af 3 »
Melrakkasetur Íslands er til húsa í Eyrardalsbænum í Súðavík, mitt á milli gömlu og nýju byggðarinnar. Húsið og rekstur þess er í höndum Súðavíkurhrepps en starfsemin er í höndum Melrakkaseturs Íslands ehf.

Frekari upplýsingar: 456-4922 / www.melrakki.is / melrakki@melrakki.is / Ester Rut Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri gsm: 862 8219

Samkomuhús Súðavíkur

« 1 af 18 »
Samkomuhúsið er með eldhúsi og hentar því vel fyrir samkomur t.d. ættarmót, afmælisveislur, fermingarveislur, giftingar eða til fundarhalds. Nokkrum sinnum á ári eru haldinn böll eða diskótek á Samkomuhúsinu og þau ætti engin að láta fram hjá sér fara.


Til leigu allt árið - Uppl. og bókanir hjá Súðavíkurhrepp í síma 450 5900

Sumarhúsaleiga -Gisting - Iceland Tour Guy

« 1 af 4 »

Iceland Tour Guy bíður upp á sumarhús til leigu allt frá 5 manna til 10 manna húsum. Einbýlishúsið Aðalgata 16, Túngata 10. 15 og 17. Sumarhúsið Hlíð í Álftafirði og svefnpokapláss og uppbúin rúm í farfuglaheimilinu Túngötu 13. Einnig er boðið upp á skipulaðar dags gönguferðir á Kofrann og Hest við Seyðis og Hestfjörð.

 


Heimasíða: www.exploreiceland.ws Heimasíða: www.icelandtourguy.com


Nánari upplýsingar veita:

Vilborg Arnarsdóttir

Upplýsingar í síma +354-8680566

bogga@icelandtourguy.com


Nánari upplýsingar veita:

Eggert Nielson

Sími +1 (703) 929-5262

eggert@icelandtourguy.com


Tígur ehf.

Aðsetur Tígur ehf er að Holtagötu 25 í Súðavík.
Fyrirtækið er verktakafyrirtæki og býður upp á gröfuþjónustu o.fl.


Nánari upplýsingar í símum: 456-5902 / 864 0317 - Netfang: sigurdis@simnet.is

Veitingastaðurinn, Jón Indíafari

Veitingastaðurinn Jón Indíafari er í þjónustuhúsinu Álftaveri að Grundarstræti 3.

 

Nafn veitingastaðarins er sótt til hins víðförla Jóns Indíafara sem fæddur var á Svarthamri við Álftarfjörð sem er skammt innan við Súðavík.

 

Jón Indíafari er jafnframt skemmtistaður og er barinn opin um helgar og þegar þurfa þykir. Boðið er upp á veisluþjónustu sem hentar fel við hin ýmsu tækifæri, s.s. fyrir afmælisveislur, ættarmót, eða einkasamkvæmi.

Um er að ræða veislumat eins og hann gerist bestur.


Hægt að panta heimilismat fyrir vinnuhópa og aðra sem dvelja í lengri eða skemmri tíma á staðnum.


Opið allt árið. - Bókanir í síma 456 4981 / 654-4981  

Víkurbúðin - matvöruverslun

« 1 af 2 »
Matvöruverslunin Víkurbúðin er staðsett í þjónustuhúsinu við Álftaver, Grundarstræti 3.
Þar er einnig bensínafgreiðsla Orkunnar.

Opið er sem hér segir:

Sumartími:
Frá 15. maí til 31. september:
Alla virka daga frá kl. 12:00 til 18:00
Laugardaga: Frá kl. 12:00 til 18:00
Sunnudaga: Frá kl. 13:00 til 18:00

Vetrartími,
frá 1. október til 16. mai sem hér segir:
Alla virka daga frá kl. 12:00 til 17:00
Laugardaga: Frá kl. 17:00 til 18:00
Sunnudaga: Lokað


Upplýsingar í símum: 456 4981 / 654-4981


Fundargerdir

Meira
Vefumsjón