Ögurferðir- kajak- og gönguferðir
Ögurferðir bjóða kajak- og gönguferðir um söguslóðir í Ísafjarðardjúpi. Skoðaðu lifandi náttúru, slóðir Fóstbræðrasögu, Spánverjavíga og sögu byggðar með staðkunnugum leiðsögumönnum sem gera hið ósýnilega sýnilegt og miðla sögu svæðisins til þín.
Við tökum á móti þér í Ögri en í flestum tilvikum koma ferðalangar þangað á eigin vegum. Við getum útvegað far í Ögur ef óskað er eftir því.
Hvar erum við?
Við bendum á að þrisvar í viku er rúta frá Stjörnubílum milli Ísafjarðar og Ögurs. Rútan fer frá Ísafirði á sunnudögum kl. 13:00 og til baka frá Ögri kl. 17:30. Á þriðjudögum og föstudögum fer rútan kl. 12:00 frá Ísafirði og til baka frá Ögri kl. 16:30. Ferðalangar geta nýtt rútuferðina og verið í Ögri rúmar 3 klst. sem nýtast vel í göngu- eða kajakferðir.
Ögur ehf -Ögri Ísafjarðardjúpi - Vefsíða: www.ogurtravel.com - Netfang: ogur@ogurtravel.com - Sími: 857-1840



