Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae Ásgeirshúsið
- Tröð 3. 
Aðalgötu 32
Ásgeirshúsið - Tröð 3. Aðalgötu 32

Sunnudaginn 5. maí nk. kl. 13:00 verður Íbúaþing Súðavíkurhrepps haldið í Súðavíkurskóla.
Á íbúaþinginu verður lögð megináhersla á stefnumótun í atvinnumálum og er íbúaþingið haldið í samstarfi við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða (www.atvest.is).

Íbúaþing Súðavíkurhrepps 2013

Haldið í Súðavíkurskóla, sunnudaginn 5. maí. nk.

Atvinnumál í brennidepli

Dagskrá íbúaþings:

13:00 – 13:10 Setning íbúaþings Súðavíkurhrepps

13:10 – 13:30 Yfirferð á fyrri verkefnum og árangri úr stefnumótun liðinna ára

13:30 – 13:45 Niðurstaða atvinnulífskönnunar sem gerð var meðal fyrirtækja

13:45 - 14:05 Lykilatriði í atvinnuþróun og byggðaþróun

14:05 – 14:25 Kynning á mögulegum áherslum í atvinnumálum

14:25 – 15:40 Skipt í vinnuhópa sem vinna verkefnahugmyndir og áherslur í atvinnumálum

15:40 – 16:00 Kaffi í boði Súðavíkurhrepps

16:00 – 16:20 Vinnuhópar kynna niðurstöður sínar

16:20 – 16:40 Tónlistaratriði nemenda og kennara Súðavíkurskóla

16:40 – 17:00 Opnar umræður

17:00 Þingslit

· Það er von okkar að þú mætir á Íbúaþingið og takir þannig þátt í að móta sameiginlega stefnu okkar í atvinnumálum.

· Tækifærin eru fyrir hendi, okkar að ákveða hvar
áherslurnar eiga að vera.

· Einn þátttakanda íbúaþingsins verður dregin út í lok þingsins og hlýtur hann spjaldtölvu í vinning.



Ítarefni:
Þann 25. október 2008 var haldið íbúaþing í Súðavíkurhreppi ( Súðavíkurhreppur eftir fimm ár) og má kynna sér skýrsluna hér.

Þann 1. júní árið 2005 samþykkti sveitarstjórn Stefnumörkun Súðavíkurhrepps 2005 -2010 og má kynna sér skýrsluna hér.

Þann 14. mars 2004 var haldið íbúaþing í Súðavíkurhreppi ( Til móts við nýja tíma) og má kynna sér skýrsluna hér.

 

 

Ómar Már Jónsson,

sveitarstjóri

 

 


Fundargerdir

Meira
Vefumsjón