Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae Fagrabrekka.
Víkurgata 5.
Fagrabrekka. Víkurgata 5.

Auglýsingar

Atvinnuhúsnæði
Íbúðarhúsnæði
Störf í boði

Auglýsing um kjörfundi í Súðavíkurhreppi.

Kjörfundur vegna alþingiskosninganna fer fram laugardaginn 27 apríl 2013.  Kosið verður í Súðavíkurhreppi í tveimur kjördeildum, í Reykjaneskjördeild og Súðavíkurkjördeild.

Í Reykjaneskjördeild er kjörstaður í Heydal og í Súðavíkurkjördeild er kjörstaður í Súðavíkurskóla.

Í Reykjaneskjördeild hefst kjörfundur kl. 12.00 og lýkur í síðasta lagi
kl. 18.00.
Í Súðavíkurkjördeild hefst kjörfundur kl. 12.00 og lýkur í síðasta lagi
kl. 20.00.

Mörk kjördeilda eru um Ögurnes, þannig að Hvítanes og Vigur tilheyra Súðavíkurkjördeild, en Ögur og allir bæir í hreppnum þar fyrir innan tilheyra Reykjaneskjördeild.

Athygli kjósenda er vakin á ákvæði 55 gr. laga nr. 5/1998, en þar segir:
“Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhendir fulltrúi í kjörstjórn honum einn kjörseðil.”


Súðavík 22 apríl 2013


Yfirkjörstjórn Súðavíkurhrepps


Kristján Kristjánsson, Hvítanesi
Lilja Ósk Þórisdóttir, Súðavík
Steinn Ingi Kjartansson, Súðavík
Fundargerdir

Meira
Vefumsjón