Bláberjadagar 2012
Daganna 24 ágúst til og með 26. ágúst nk. verða Bláberjadagar 2012 haldnir í Súðavík. Bláberjadagar voru haldnir í fyrsta skiptið í fyrra og tókust frábærlega í alla staði.
Hlökkum til að sjá ykkur!
- Hvar?
Súðavík - Hvenær?
24. ágúst til 26. ágúst - Klukkan?
11:28
Skúli Mennski í Melrakkasetrinu
Skúli Mennski mun koma í Melrakkasetrið föstudagskvöldið þann 10.ágúst og mun spila frá kl. 21:00 og eitthvað frameftir.
Kaldur verður á barnum og einnig hvítt & rautt.
Tilboð verður á diskum hans alla helgina og verður aðgangseyrir aðeins 1000 kr.
Ekki láta þig vanta!
- Hvar?
Melrakkasetrið í Eyrardal - Hvenær?
10. ágúst til 10. ágúst - Klukkan?
21:00
Inndjúpsdagurinn, laugardaginn 4. ágúst nk.
Laugardaginn 4 ágúst nk. verður Inndjúpsdagurinn haldinn í annað skipti í Vatnsfirði og Heydal.
Um er að ræða einstaka fjölskylduhátíð með miðaldaívafi. Í Heydal verður lögð sérstök áhersla á Björn Jórsalafara ( 1350 - 1415) sem bjó í Vatnsfirði. Þar mun Elvar Logi Hannesson flytja frumsaminn leikþátt um Björn.
Ása Grímsdóttir mun greina frá bók sinni um sögu Vatnsfjarðar. Kenndir verða dansar frá miðöldum undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur. Börnum og unglingum er boðið að taka þátt í miðaldaleikjum og fara í stuttar hestaferðir gegn vægu gjaldi.
DAGSKRÁ:
1. Skipulögð leiðsögn í vatnsfirði kl. 13:00 og 15:00 (ókeypis leiðsögn).
2. Leikþáttur um BJörn Jórsalafara kl. 17:00. (kr. 1.500 - frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
3. Matseðill með miðaldaívafi- hlaðborð frá kl. 19:00 - 22:00. (kr. 3.000 - 1.200 fyrir börn 6 - 12 ára)
4. Miðaldadansar, söngur o.fl. frá kl.þ 22:30 í Heydal. (kr. 1.000)
- Hvar?
Heydalur, Vatnsfjörður - Hvenær?
4. ágúst til 4. ágúst - Klukkan?
13:00



