Afmælishátíð Melrakkaseturs
Í tilefni tveggja ára opnunarafmælis Melrakkasetursins
verður opið hús í Eyrardal milli kl. 13 og 18 á sunnudaginn, þann 10. júní.
Á boðstólnum verður forláta afmælisterta frá Gamla bakaríinu, mix frá Ölgerðinni, Ís frá Kjörís og auðvitað er kaffi á könnunni.
Loftið ómar af tónlist og handverkið verður á sínum stað.
Mikki og melrakkarnir spjalla við gesti.
Andlitsmálun í boði.
Hægt verður að búa til sín eigin barmmerki með listakonunni Ninu.
Allir velkomnir því allir eru melrakkar í hjarta sínu
- Hvar?
Melrakkasetur í Eyrardal - Hvenær?
10. júní - Klukkan?
13:05 til 18:05



