föstudagurinn 31. mars 2017
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017
Fiskistofa auglýsir enn á ný eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðu byggðalagi sbr. auglýsingu nr. 268/2017 í Stjórnartíðindum
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2017.
Áður sendar umsóknir og samningar gilda.
Fiskistofa 31. mars 2017